
Þegar kviknar á deginum Og í lífinu ljós Þegar myrkrið hörfar frá mér Þá er eitthvað sem hrífur mig Líkt og útsprungin rós Þá vil ég vera hjá þér Þegar geng ég í sólinni Mitt um hábjartan dag Litafegurð blasir við mér Þegar heimurinn heillar mig Líkt og töfrandi lag Þá vil ég vera hjá þér Ég vil bæði lif’og vona Ég vil brenna upp af ást Ég vil lifa með þér svona Ég vil gleðjast eða þjást Meðan leikur allt í lyndi Líka þegar illa fer Meðan lífið heldur áfram Þá vil ég vera hjá þér Meðan skuggarnir stækka og Ýta húminu að Gamall máninn bærir á sér Vil ég eiga andartak Inni á rólegum stað Þá vil ég vera hjá þér Ég vil bæði lif’og vona Ég vil brenna upp af ást Ég vil lifa með þér svona Ég vil gleðjast eða þjást Meðan leikur allt í lyndi Líka þegar illa fer Meðan lífið heldur áfram Þá vil ég vera hjá þér Ooh, meðan leikur allt í lyndi Líka þegar illa fer Meðan lífið heldur áfram Þá vil ég vera hjá þér Þegar slokknar á deginum Yfirþyrmandi nótt Stormar fyrir stjarnanna her En það bítur mig ekkert á Og ég sef vært og rótt Ef þú vilt vera hjá mér Þá vil ég vera hjá þér
Песен-НИКИ
Загрузка...
Другие песни Sálin hans Jóns míns
Все песни →Похожие песни

Бигасс
SODA LUV
Ничего личного
Русский рэп201975,446

Бандана
Платина
РНБ КЛУБ
Русский рэп201859,980

Свадебное путешествие
Александр Буйнов
Острова любви
Русская эстрада199954,906

Каспий жағалауы
Azamat
Поп200134,438

Шпилька-каблучок
Лолита
Анатомия
Русская эстрада201433,308

Девочка 2D
Dead Rave
Singles 15-17
Русский рэп201828,891



