
Það er af sem áður var —annar heimur en í gær. Þó ég losi um ýmis leyndarmál er ég sáralitlu nær. Andi minn er opið sár og ég engist um af kvöl. Eftir umhugsun bind ég endahnút —ég á enga aðra völ. Ég mun ekki leggja á herðar þínar fleiri lóð. Ég mun ekki gera þér annan grikk, því lífið liggur við. Láttu mig vera. Leiktu við aðra en mig. Láttu mig vera og losaðu um. Láttu mig vera. Leystu þig viðjunum úr. Láttu mig vera og lifð' upp á nýtt. Það er ólga inní mér og ég ærist smátt og smátt. Ég er umvafinn öllum orðunum —en ég segi ósköp fátt. Þessi sál er kaunum sett eftir samviskunnar bit. Það er ótrúlegt eftir allt sem var að þú ennþá hafir vit. Ég mun ekki leggja á herðar þínar fleiri lóð. Ég mun ekki gera þér annan grikk, því lífið liggur við. Láttu mig vera. Leiktu við aðra en mig. Láttu mig vera og losaðu um. Láttu mig vera. Leystu þig viðjunum úr. Láttu mig vera og lifð' upp á nýtt. Hann var dimmur þessi dagur, -þú mátt dæma það á mig. Það mun rísa annar fagur -já þú munt finna þig, og feta nýja leið.
Песен-НИКИ
Загрузка...
Другие песни Sálin hans Jóns míns
Все песни →Похожие песни

Бигасс
SODA LUV
Ничего личного
Русский рэп201975,446

Бандана
Платина
РНБ КЛУБ
Русский рэп201859,980

Свадебное путешествие
Александр Буйнов
Острова любви
Русская эстрада199954,906

Каспий жағалауы
Azamat
Поп200134,438

Шпилька-каблучок
Лолита
Анатомия
Русская эстрада201433,308

Девочка 2D
Dead Rave
Singles 15-17
Русский рэп201828,891



