Regnbogaland

Regnbogaland

Langt langt í fjarska
Er lítil fögur storð
Hafgrænt Ægishjarta
Hlýjar manni um sporð
Bárurnar grænar brotna
Á bleikum sandi
Brimhvítt löðrið brotnar
Á Regnbogalandi
Glampandi sólskin annan grenjandi rigning hinn
Svona á veðrið að vera veðurguðinn minn
Skutlum okkur útí
Steypumst á bólakaf
Köfum í ævintýrið
Stingum hina af
Dreif mig til draumanna þinga
Dansaði í hring mitt hjarta
Ég sá hana fyrir mér hreina
Drifhvíta og bjarta
Koparrautt var hárið og rjóð var hún í kinnum
Ég kyssti rósvarir hundraðþúsund sinnum
Skutlum okkur…

Песен-НИКИ

Загрузка...

Другие песни Nýdönsk

Все песни →

Похожие песни