
Ískristallar, frostið kallar á mig, ég er kaldur maður Þið getið fundið mig þar, sem myrkrið étur daginn eins og almyrkvar Því, það sem í æðum mínum rennur, er geislavirkur frostlögur Og, það sem í hjarta mínu brennur, ískaldar draugasögur Fjögurra tíma dagsljós, dagurinn stuttur en nóttin er lengri Skítug tóbaksdós, allir vilja bita en við erum svengri Uppúr snjónum við komum, með köllum og konum, við tjónum, ég flengi Þið megið bíða eftir mér, þrjú ár í viðbót, ég verð ekki lengi Koma myrku næturnar, naga á mér fæturna Þarf ekki bætur, tunglið grætur Reykjavíkurdæturnar Hlýjum okkur, komum fólki saman, brennum ræturnar En það er alltaf betra að vera á bar Kaldar nætur, klæðumst klakabrynjum Rekjum rætur, við stóðum sterk frá byrjun Íslands þúsund ár Við stritum en stefnum samt alltaf beint áfram og aldrei við þiðnum í roki við sigrum Boli kælir, frýs blóð Bítur fast að beini Rökkvar yfir þjóð Í skugga lifir í leyni Máni meirimáttar Man sól sinn fífil fegurri Veðurbarinn borgari Blautari en malbikið Fönn fellur yfir landið Fiðrið faðmar landann Stigmagnast styrkur í blandið Fólk er að sötra allan fjandann Fingurgómar frosnir Finn augun hallast aftur Hvernig kemst ég heim? Úr mér er allur kraftur Myrkasti mánuður ársins, sjáum ekki sólina, sjáum bara tárin Finn að kulna fer í glóðum bálsins, við brosum en gleðin hún er bara tálsýn En hvað gerum við þegar gamanið kárnar, hvað gerum við þegar jökullinn bráðnar Minnumst þess kátir hvað okkur var kærast, þegar myrkrið er mest skína stjörnurnar skærast Kaldar nætur, klæðumst klakabrynjum Rekjum rætur, við stóðum sterk frá byrjun Íslands þúsund ár Við stritum en stefnum samt alltaf beint áfram og aldrei við þiðnum í roki við sigrum
Песен-НИКИ
Загрузка...
Похожие песни

Бигасс
SODA LUV
Ничего личного
Русский рэп201975,448

Бандана
Платина
РНБ КЛУБ
Русский рэп201859,980

Свадебное путешествие
Александр Буйнов
Острова любви
Русская эстрада199954,906

Каспий жағалауы
Azamat
Поп200134,438

Шпилька-каблучок
Лолита
Анатомия
Русская эстрада201433,308

Девочка 2D
Dead Rave
Singles 15-17
Русский рэп201828,891