
Er síminn hringdi þá svaf borgin Ég sat sem lamaður við þá frétt Ég fylltist reiði — síðan kom sorgin Sumar fréttir hljóma aldrei rétt Ég var orðin edrú þegar hann fæddist Aldrei gleymi ég þeirri stund Sú tíð var liðin er ég drukkinn læddist Um húsið heima með svarta lund Og nú sit ég hér á að svara þér Sit við þetta borð Og þú segir mér að sonur minn Sé ákærður fyrir morð Faðir minn heitinn var harður maður Með hjartað vel falið og ráma rödd Okkar heimili var hans drykkju staður Við forðuðumst að verða á vegi hans stödd Þannig liðu árin uns ég fór að heiman Úti var veröldin svo risastór En ættardrauginn ég dæmdist að teyma hann Drykkjan fylgdi mér hvert sem ég fór Og nú sit ég hér á að svara þér Sit við þetta borð Og þú segir mér að sonur minn Sé ákærður fyrir morð Ég og mín kona ólum upp þrjú börnin Eftir bestu getu og tíminn leið Stundum var vöndurinn eina vörnin Ef villtust börnin af réttri leið Hann hef ég elskað frá fyrstu stundu Frá fyrstu mínútu í lífi hans En syndir feðranna drenginn minn fundu Og færðu honum að gjöf ólukkukrans Og nú sit ég hér á að svara þér Sit við þetta borð Og þú segir mér að sonur minn Sé ákærður fyrir morð Sonur minn er ekki illur maður Engin sál veit sinn lífsins veg Sem lítill drngur var hann góður — glaður Nú græt ég hans örlög hryggileg Og nú sit ég hér á að svara þér Sit við þetta borð Og þú segir mér að sonur minn Sé ákærður fyrir morð Og nú sit ég hér á að svara þér Sit við þtta borð Og þú segir mér að sonur minn Sé ákærður fyrir morð Og þú segir mér að sonur minn Sé ákærður fyrir morð
Песен-НИКИ
Загрузка...
Другие песни Bubbi Morthens
Все песни →Похожие песни

Бигасс
SODA LUV
Ничего личного
Русский рэп201975,449

Бандана
Платина
РНБ КЛУБ
Русский рэп201859,980

Свадебное путешествие
Александр Буйнов
Острова любви
Русская эстрада199954,906

Каспий жағалауы
Azamat
Поп200134,438

Шпилька-каблучок
Лолита
Анатомия
Русская эстрада201433,308

Девочка 2D
Dead Rave
Singles 15-17
Русский рэп201828,891




